Rebekkustúka nr.7 Þorgerður - IOOF

Golfspil Þorgerðarsystra!!! Búið er að panta rástíma á Oddi fyrir okkur Þorgerðarsystur þriðjudaginn 22. Júní. Fyrsti rástíminn er kl. 14:10. Systur sem

Golfspil Þorgerðarsystra!!!

Búið er að panta rástíma á Oddi fyrir okkur Þorgerðarsystur þriðjudaginn 22. Júní. Fyrsti rástíminn er kl. 14:10.

Systur sem ætla að spila þurfa að staðfesta komu sína við Margréti Lárusdóttur í síma 565 6213, eðajsverris@simnet.is. Mæting er ekki seinna en kl.13:30 og þá verður raðað í holl. Fyrsti rástími er sem fyrr segir kl. 14:10.

Til þess að systur úr öðrum golfklúbbum geti spilað með okkur, þá borgum við allar fyrir rástíma. Verðið fer eftir því hve margar mæta, eitthvað á bilinu 1.200 - 1.500 kr.

Golfspilið tekur okkur um það bil 4 – 5 tíma, og á eftir ætlum við að hittast í golfskálanum og fá okkur léttar veitingar.

Systur sem ekki spila golf eru hjartanlega velkomnar að hitta okkur í golfskálanum um kl.19 og fá sér léttar veitingar með okkur.

Það er spáð ágætisveðri á morgun og þá er okkur að vanbúnaði.
Muna að taka með góða skapið og hafa gaman saman  :o)
Margrét Lárusdóttir



Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf